Sælir drengir.
Undanfarnar 3 vikur hafa verið ótrúlega lélegar hjá okkur hvað varðar mætingu og áhuga. Það er orðið allt of algengt að menn mæti ekki á æfingar og gefa enga ástæðu fyrir fjarveru sinni. Þetta á auðvitað ekki við um alla leikmenn. það er ekki nóg að pósta í commentum hér á blogginu að þið komist ekki á æfingu, þið verðið að gefa ástæðu fyrir fjarveru ykkar,
Í dag (miðvikudag) mættu tveir leikmenn á æfingu, fimm tilkynntu um fjarveru og flestir þeirra án ástæðu. Ég veit ekkert um afganginn af ykkur.
Við Toggi höfum ákveðið að taka á þessu máli eins og við gerðum hér eftir áramót, þeir sem ekki mæta þeir hlaupa.
Næsta æfing er á fimmtudag kl. 20: 30. Engin æfing verður á laugardag vegna þess að húsið er upptekið en á sunnudag verður svo aftur æfing kl. 11:40.
Það eru mikilvægir leikir hjá okkur í apríl þar sem við klárum að spila D-riðilinn og ég trúi því ekki að þið sættið ykkur við að vera áfram í þeim riðli fyrir næsta vetur. við ætlum okkur upp en það gerist þó ekki að sjálfu sér, þið þurfuð að hafa fyrir því.
Wednesday, April 7, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Komst ekki á æfingu í gær vegna þess að ég var að fara horfa á leikrit!
ReplyDelete