Sunday, December 12, 2010

Bikarleikur (uppfært)

Bikarleikurinn gegn ÍR verður föstudaginn 17. desember kl. 18:30 í Seljaskóla. Mæting 17:45. Tilbúnir í búning 18:00.

Þriðjudagur: æfing 19:00
Miðvikudagur: æfing 16:00
Fimmtudagur: æfing 20:00-21:40 í gamla salnum
Sunnudagur: æfing 13:20

Sunday, December 5, 2010

Æfingar í vikunni.

Það mun vera ansi róleg vikan hjá okkur þessa vikuna en svo munum við æfa af krafti fram að jólum og á milli jóla on nýárs.

Mánudagur: Hoppæfing + spilað á eftir
Þriðjudagur: Æfing 19:00-20:30
Miðvikudagur: Æfing kl. 16:00 (spilað og styrktarþjálfun
Fimmtudagur: FRÍ
Sunnudagur: Æfing 13:00-14:40

Á föstudaginn er svo leikur hjá mfl. karla þar sem mig vantar 2 stráka á ritaraborðið.

Monday, November 29, 2010

Vikan

Allar æfingar verða á venjulegum tímum nema að æfingin á fimmtudaginn fellur niður vegna handboltaleiks.

Við tökum svo frí vikuna 6-12 desember en förum aftur á fullt eftir það og æfum í jólafríinu eins og við getum.

Monday, November 22, 2010

Vikan

Ath. 9. flokkur ég hef gert þá breytingu að þið eruð bara 4. sinnum í viku. Ég tók út laugardagsæfinguna þannig að þið séuð eitthvað í fríi um helgar. Þá hef ég einnig breytt æfingum þannig að þið æfið með 10. flokki á þriðjudögum en 8. flokki á fimmtudögum. Sjáið tímasetningar hér til hliðar!

Ég minni ykkur á að kommenta hversu marga leiki þið hafið tekið á ritaraborði til þessa.

Þið þurfið svo að fara að greiða Orra fyrir styrktarþjálfunina. Allir sem hafa tekið þátt í þjálfuninni borga kr. 1500 fyrir hvern mánuð og mæli ég með að þið borgið fyrir október, nóvember og desember (4.500 krónur). Reynið að ganga frá þessu við hann á miðvikudag.

Æfingar í vikunni:
þri: Æfing 19:00-20:00
Mið: Æfing 16:00-17:00
Fim: Æfing 19:00-20:00
Fös: Æfing 18:10-19:30

Næstu helgi er mót hjá 10. flokki og verður mótið í KR-heimilinu.

Laugardagur 27. nóv:
14:30 Valur-Hrunamenn

Sunnudagur 28. nóv:
14:00 Valur-KRb
17:45 Valur-Ármann

Wednesday, November 3, 2010

Ritaraborð

Ég er að halda skráningu yfir það hvað þið hafið tekið marga leiki á ritaraborði í vetur og þá meðtalið meistaraflokksleiki.

Til þess að skráningin sé rétt þá megið þið endilega pósta í kommentum hér að neðan hvað þið hafið tekið marga leiki.

Tuesday, November 2, 2010

Bíó á fimmtudag

Þá er það ákveðið. Við förum á Dinner for Schmucks á fimmtudagskvöldið.

Myndin byrjar kl. 20:00, verum mættir 15 mínútum fyrir til þess að ganga frá tilboðinu. Við fáum bíómiða, stóran popp og stóra kók á 1.500 krónur

Sunday, October 31, 2010

Frí mánudag!

Frí á æfingu mánudag!

Í skoðunakönnun hér til hliðar veljið þið eina mynd sem þið viljið sjá í bíó á fimmtudaginn. Veljið aðeins eina mynd og við förum á þá mynd sem þið viljið helst sjá. Verið búnir að velja fyrir æfingu á þriðjudaginn!

Það veltur líka á því hvar við fáum besta tilboðið á miða+popp og kók þannig að ef að næstvinsælasta myndin gefur okkur besta tilboðið þá verður það myndin sem við veljum.

Tuesday, October 26, 2010

Vikan framundan, nóg um að vera. (UPPFÆRT!)

Æfingaleikur í kvöld gegn Haukum kl. 19:00

Æfing miðvikudag 16:00-17:15, engin styrktaræfing.

Æfing fimmtudag kl. 19:00-20:30

Leikur í bikarnum á laugardag kl. 11:30 gegn Kormáki. Verið mættir 45 mínútum fyrir leik.

Brottför fyrir ferðina á Flúðir verður á sunnudagsmorgun kl. 07:45, stundvíslega. Ferðakostnaður 2.000 krónur sem greiðast til bílstjóra.

Thursday, October 21, 2010

Mót um helgina 9. flokki (Ritaraborð UPPFÆRT NEÐST!)

Æfingaleikur gegn Haukum í 10. flokki í kvöld kl. 19:00

Mót um helgina hjá 9. flokki, svona er leikjaplanið!

Laugardagur:
11:15 Fjölnir-Valur
13:45 Hrunamenn-Valur

Sunnudagur:
09:00 Valur-Fjölnir b
12:45 Valur-Þór Ak.

Toggi gefur ykkur svo nánari tilmæli um mætingatíma og annað slíkt á æfingunni í kvöld með 8. flokknum kl. 20:00 í gamla salnum!

Ritaraborðið um helgina (ég á eftir að ath. með fleiri á ritaraborðið þannig að það er möguleiki að Guðjón og Jón fái færri leiki eða frí af því þeir eru búnir að vera mikið í vetur)
Munið að vera mættir tímanlega!

Laugardagur:
10:00 Bjarni
11:15 Bjarni
12:30 Agli
13:45 Nordal

Sunnudagur:
09:00 Víðir og Emil
10:15 Víðir og Emil
11:30 Víðir og Andri
12:45 Siggi og Agli
14:00 Siggi og Guðjón

17:00 (Valur B) Neddi

Monday, October 18, 2010

Æfingar út október

ATH. að drengir í 9. flokki mæta á æfingar hjá 8. flokki á þriðjudag kl. 19:35-20:40 í gamla sal og á fimmtudag kl. 20:00-21:40 í þessari viku.


Svona verða æfingarnar út október, gæti þó breyst en ég læt vita með góðum fyrirvara.

mánudagur 18.okt. 20:00-21:40:

Þriðjudagur 19. okt. 19:00-20:30:

Miðvikudagur 20. okt. 16:00-18:00

Fimmtudagur 21. okt. 19:00-20:30

Sunnudagur 24. okt. 15:00-16:30

Mánudagur 25. okt. 20:00-21:40

Þriðjudagur 26. okt. 19:00-20:00

Miðvikudagur 27. okt: 16:00-18:00

Fimmtudagur 28. okt. 19:00-20:30

Sunday, October 10, 2010

Æfingar þessa vikuna

Þessa vikuna munum við undirbúa okkur undir mót með 11. flokki sem verður á Akureyri næstu helgi. Þeir leikmenn 10. flokks sem hafa ekki hug á að koma með í þessa ferð verða að láta mig vita í seinasta lagi á æfingu á þriðjudag. Ef allir leikmenn sýna vilja til þess að koma með þá verður einfaldlega valið út frá því hverjir eiga það skilið.

Mánudagur: Venjulegur tími, 9-10. flokkur saman
Þriðjudagur: Venjulegur tími. 9-11. flokkur saman.
Miðvikudagur: Venjulegur tími (ath. breyttan æfingatíma, sjá til hliðar á síðunni), 9-11. flokkur saman.
Fimmtudagur: Frí vegna handboltaleiks
Föstudagur: 19:00 í gamla salnum, 10-11 flokkur saman.


Friday, October 8, 2010

Æfing á sunnudag

Æfingin á sunnudaginn verður kl. 15:00 vegna leiks Vals-Snæfells í unglingaflokki. Endilega mætið og sjáið leikinn!

Thursday, October 7, 2010

ATH breyttan æfingatíma

Æfingatími á miðvikudögum breytist. Nú byrjar æfing 16:00-17:15 og svo er styrktaræfing strax á eftir

Tuesday, September 21, 2010

Vikan

Engin æfing þriðjudag vegna Reykjavíkurmóts stúlknaflokks. 9. flokkur mætir hjá 8. flokki á æfingu kl. 19:35-20:40 í staðinn.

Æfingaleikur hjá 10.flokki á miðvikudag kl. 17:30 gegn mfl. kvenna. Engin styrktaræfing. Frí hjá 9. flokki.

Styrktaræfing kl. 18:00 á fimmtudaginn og svo æfing kl. 19:00-20:30. 9. flokkur mætir á æfingu hjá 8. flokki kl. 20:00-21:40

Æfing föstudag kl. 19:10-20:30

Leikjaniðurröðun í Reykjavíkurmót:

Laugardagur:
10:15 Valur-KR b
11:30 Fjölnir-Valur

Sunndagur:

11:20 Leikur um 3. sæti


Frí á mánudaginn.

Sunday, September 19, 2010

Æfing þriðjudag

Engin æfing verður á þriðjudaginn vegna Reykjavíkurmóts stúlknaflokks. Ég ætla hinsvegar að fá einhverja ykkar til þess að mæta og vinna á ritaraborði í staðinn. Þeir sem að hjálpuðu til í Valsmótinu sleppa að þessu sinni.

Thursday, September 16, 2010

Ritaraborð í Valsmóti

Mætið korteri fyrir leik! Ef þið komist ekki á tilsettum tíma þá verðið þið að redda einhverjum fyrir ykkur í staðinn
Ef einhver er með símanúmerið hjá Róberti látið hann vita!
Minni svo að það er engin æfing á sunnudaginn vegna Valsdagsins.

Föstudagur
19:00 Valur-Ármann (Garpur)
19:00 Hamar-Breiðablik (Daníel Snævars)
20:15 Ármann-KFÍ (Neddi, Guðjón, Daníel Snævars)
20:15 Hamar-Þór Ak (Sigurgeir, Logi, Guðjón)
21:30 Valur-KFÍ (Andri, Nordal, Siggi)
21:30 Þór Ak-Breiðablik (Emil, Logi, Víðir)

Laugardagur
13:00 A3-B3 (Dagur, Daníel Hafliða, Róbert)
14:00 A2-B2 (Dagur, Bjarni, Bjartur)
15:00 A1-B1 (Agli)

Æfing sunnudag

Æfingin á sunnudaginn fellur niður en þá er Valsdagurinn og þá er um að gera og mæta á svæðið og taka þátt í skemmtuninni.

Tuesday, September 14, 2010

Breyting á styrktaræfingu

Styrktaræfingin sem átti að vera á morgun (miðvikudag 15. september) fellur niður og í staðinn ætla ég að halda smá fund með ykkur í Lollastúkunni að lokinni æfingu.

Styrktaræfingin verður í staðinn á fimmtudaginn og byrjar hún stundvíslega kl. 18:00
Strax í kjölfarið verður æfing frá kl. 19:00-20:30. Ekki gleyma að hafa með ykkur smá næringu eins og Banana eða Gatorade til þess að skella í ykkur eftir styrktaræfinguna.

Friday, September 10, 2010

Æfing á sunnudag fellur niður

Æfingin á sunnudaginn fellur niður. Í staðinn verður æfing á laugardaginn kl. 12.30 þar sem 10 flokkur spilar gegn 11. og drengjaflokki.

Wednesday, September 8, 2010

Reykjavíkurmót 9.flokks

Um helgina verður spilað í Reykjvaíkurmótinu og verður spilað í Laugardalshöll.

Laugardagur 11. sept.
09:00 Valur-Fjölnir
11.30 Valur-KR

Sunnudagur 12. sept
09:00 Undanúrslit 1
10:15 Undanúrslit 2
11:30 Leikur um 5. sæti
12:45 Leikur um 3. sæti
14:00 Leikur um 1. sæti

Við látum ykkur með mætingu og annað slíkt þegar nær dregur.

Sunday, August 22, 2010

Fyrsta æfing mánudag

Það byrjar ekki vel hjá mér en ég lofaði upp í ermina á mér.

Fyrsta æfing er á þriðjudag, ekki mánudag.

Þetta er vegna þess að það er verið að gera upp gamla salinn og því falla allar æfingar þar niður í þessari viku.

Thursday, August 19, 2010

ÆFINGAR HEFJAST AFTUR

Jæja drengir, nú fara æfingar að hefjast að nýju.

Þið getið séð æfingatímana hér á síðunni til hliðar, efst hægra megin.

Samkeppni innan flokksins hefur aukist með tilkomu tveggja nýrra leikmanna og því enn meiri kröfur um að menn leggi sig fram á æfingum.

Sé ykkur á mánudaginn.

Thursday, August 5, 2010

Æfingabúðir

Körfuboltaskóli Vals

Námskeiðið er fyrir börn, 6 ára og eldri og fer fram í glæsilegri aðstöðu í Vodafone höllinni að Hlíðarenda. Lögð verður áhersla á þjálfun í smærri hópum auk þess sem eldri þátttakendur fá einstaklingsþjálfun. Reyndir og góðir leiðbeinendur sjá um skólann og gestakennarar koma í heimsókn. Skráning fer fram á heimasíðu Vals: http://valur.is/Sumarstarf/Korfuboltaskoli/

Boðið verður upp á tvö viku námskeið fyrir 6-11 ára frá 09:00-12:00
Námskeið I: 9.–13. ágúst
Námskeið II: 16.-20. ágúst

Hálfsmánaðar námskeið fyrir12-15 ára frá 12:30-14:00 frá 9.-20. ágúst.

Hálfsmánaðar námskeið fyrir 16-18 ára frá 16:00-17:30 frá 9.-20. ágúst

Verð á vikunámskeiði hjá yngri er 5.000 kr. en taki þau bæði námskeiðin er verðið 8.000 kr.

Verð á námskeiðinu hjá eldri iðkendum er 6.000 krónur tvær vikur.

10% systkynaafsláttur

Skólastjóri verður Lýður Vignisson yfirþjálfari körfuboltans.

Thursday, July 1, 2010

Æfingar í júlí!

Í júlí mun ég vera með æfingar þrisvar sinnum í viku, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 17:00-18:30.

Þetta verða opnar æfingar fyrir 9-drengja/stúlknaflokk þar sem þið getið komið inn og unnið í einstaklingsæfingum um leiðsögn þjálfara. Ef fjöldi fer yfir ákveðna tölu þá mun ég bæta við þjálfara til þess að aðstoða við þessar æfingar.

Æfingagjaldi verður stillt í hóf eða 4.000 krónur fyrir mánuðinn sem gerir alls 18+ klukkustundir.

Thursday, May 20, 2010

NBA

Núna á laugardagskvöld ætlum við að hittast í Valsheimilinu og horfa á NBA, Boston-Orlando.
Leikurinn byrjar 00:30 eftir miðnætti þannig að við skulum hafa mætingu ca. á miðnætti.

Ef þið viljið panta ykkur pizzu þá takið þið bara með ykkur pening. Reiknið með amk 1500 krónum fyrir pizzu. Við höfum ekki aðgang að sjoppunni í Valsheimilinu á meðan á leik stendur þannig að að þið verðið að taka með ykkur drykki.

Ég get svo séð um að skutla ykkur heim eftir að þessu lýkur.

Tuesday, May 11, 2010

Uppskeruhátíð Yngri Flokka

Körfubolti í Val
Uppskeruhátíð yngri flokka

Uppskeruhátíð yngri flokkanna í körfubolta verður haldin í hátíðarsal Vodafone hallarinnar þriðjudaginn 18. maí kl.16:30. Þar verður uppskera vetrarins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2009-2010.
Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður Valur upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.
Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.

Með Valskveðju
Uppskeruhátíðarnefnd

Friday, April 23, 2010

Úrslit unglingaflokks karla

Um helgina fara fram úrslit unglingaflokks karla í Smáranum Kópavogi.

Á laugardaginn spila okkar menn í Val gegn Haukum kl. 16:45 og hvetjum við alla iðkendur til þess að mæta og styðja sitt lið til sigurs.

Ef Valur sigrar í þessum leik þá spila þeir til úrslita á sunnudaginn kl. 18:00

Tuesday, April 13, 2010

Leikir næstu daga hjá 9. flokki (uppfærtx2!!!)

Sælir drengir.

Búið er að raða niður leikjum okkar í D-riðli og verður spilað á mismunandi stöðum á mismunandi dögum. Þið sjáið sjálfir um að komast á keppnisstað þar sem að allir leikir eru á Reykjavíkursvæðinu. Ef einhverjir eiga í erfiðleikum með að komast á leikstað þá verðið þið að tala ykkur saman um að fá far hjá hvor öðrum. Munið að vera alltaf mættir á leikstað klukkutíma fyrir leik.

Leikjaplanið er eftirfarandi:

Seljaskóli fimmtudaginn 15. apríl.
Kl. 21:10: Valur - Breiðablik b (Búið að fresta leiknum til óákveðins tíma)

Álftanes föstudaginn 16. apríl.
Kl. 16:00: Valur - Álftanes

Smárinn Kópavogi mánudaginn 19. apríl.
Kl. 19:30: Valur - KR b (Búið að fresta leiknum til óákveðins tíma)

Valsheimilið miðvikudaginn 21. apríl.
18:00: Valur - ÍR b

Monday, April 12, 2010

Skóskiptimarkaður

Smellið á myndina til þess að lesa textann!

Saturday, April 10, 2010

Æfingin á fimmtudag

Toggi átti að sjá um æfinguna á fimmtudaginn en gleymdi sér. Þið látið hann bara hlaupa á sunnudaginn;)

Wednesday, April 7, 2010

ÁTAK!!!

Sælir drengir.

Undanfarnar 3 vikur hafa verið ótrúlega lélegar hjá okkur hvað varðar mætingu og áhuga. Það er orðið allt of algengt að menn mæti ekki á æfingar og gefa enga ástæðu fyrir fjarveru sinni. Þetta á auðvitað ekki við um alla leikmenn. það er ekki nóg að pósta í commentum hér á blogginu að þið komist ekki á æfingu, þið verðið að gefa ástæðu fyrir fjarveru ykkar,

Í dag (miðvikudag) mættu tveir leikmenn á æfingu, fimm tilkynntu um fjarveru og flestir þeirra án ástæðu. Ég veit ekkert um afganginn af ykkur.

Við Toggi höfum ákveðið að taka á þessu máli eins og við gerðum hér eftir áramót, þeir sem ekki mæta þeir hlaupa.

Næsta æfing er á fimmtudag kl. 20: 30. Engin æfing verður á laugardag vegna þess að húsið er upptekið en á sunnudag verður svo aftur æfing kl. 11:40.

Það eru mikilvægir leikir hjá okkur í apríl þar sem við klárum að spila D-riðilinn og ég trúi því ekki að þið sættið ykkur við að vera áfram í þeim riðli fyrir næsta vetur. við ætlum okkur upp en það gerist þó ekki að sjálfu sér, þið þurfuð að hafa fyrir því.

Friday, April 2, 2010

Páskafrí

Ég gleymdi alveg að setja inn upplýsingar um páskafrí en eins og alltaf þá eru engar æfingar meðan skólar eru í fríi.

Næsta æfing verður þriðjudaginn 6. apríl.

Friday, March 26, 2010

Valur-Keflavík 10. flokki

Leikurinn gegn Keflavík í 10. flokki verður spilaður laugardaginn 27. mars kl. 11:30 í Valsheimilinu. Verið mættir 10:30 og tilbúnir í búning í síðasta lagi kl. 11:00

Monday, March 22, 2010

Æfingabúðir Vals um páskana

Æfingabúðir Vals um páskana.

Dagana 29.-31. mars fara fram æfingabúðir Vals í körfuknattleik í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Umsjónamaður verður Lýður Vignisson yfirþjálfari yngri flokka Vals en honum til aðstoðar verða reyndir leiðbeinendur.

Boðið verður upp á tvo aldursflokka, yngri og eldri. Yngri iðkendur fæddir 1998-2003 (6-11 ára) eru frá kl. 09:00-11:30. Ráðlegt er að senda börnin með smávegis næringu með á æfingarnar en hlé verður gert á æfingum milli 10:00-10:20 til þess að nærast.

Eldri iðkendur fæddir 1993-1997 (12-16 ára) eru frá kl. 12:00-14:00

Æfingabúðirnar munu einkennast af grunn- og tækniþjálfun þar sem lögð verður áhersla á einstaklinginn. Æfingabúðir yngri iðkenda munu þó einnig einkennast af leikjum og skemmtun en á síðasta degi æfingabúðanna verður haldið mót milli iðkenda í hvorum aldurshópi fyrir sig.Þátttökugjald er kr. 3.000 krónur sem greiðist á fyrsta degi æfingabúðanna.

50% Vinaafsláttur: Ef þú ert Valsari og langar að bjóða einhverjum utan félagsins með þér í æfingabúðirnar þá er það alveg sjálfsagt. Ef þú færð einhvern vin með þér í æfingabúðirnar þá borgið þið báðir/báðar einungis hálft gjald.

Skráningar berist til Lýðs á netfangið Lydur06@ru.is eða í síma 694-4033. Vinsamlegast gefið upp nafn og kennitölu iðkenda sem og nafn, kennitölu og gsm-símanúmer foreldra.

Thursday, March 18, 2010

Æfingaleikur og helgin

Minni ykkur á æfingaleikinn í kvöld kl. 20:30 gegn KR b. Þessi leikur er eingöngu fyrir leikmenn 9. flokks og því fá strákarnir í 10. flokki frí en endilega að mæta og fylgjast með leiknum.

Um helgina verður svo æfing á laugardaginn í gamla salnum kl. 14:40.
Vegna handboltamóts verður engin æfing á sunnudaginn.

Friday, March 5, 2010

Helgin

Engin æfing á laugardag (6. mars). Æfing á sunnudag (7.mars) kl. 11:40

Thursday, February 25, 2010

Æfing á laugardag

Æfingin á laugardaginn (27. feb) verður kl. 11:30

Endilega minnið foreldra ykkar á þessa fjáröflun. Ég var búinn að senda póst á foreldra ykkar.

Nú ætlum við í körfunni í Val að fara af stað með fjáröflun fyrir yngri flokkana.
Um er að ræða sölu á klósettpappír og eldhúsrúllum.

Eftirfarandi pakkar eru í boði:

Pakki 1: Wc pappír 200 blaða 48 rúllur c.a 24m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 – 3000
Pakki 2: WC MAXI 380 blaða 40 rúllur c.a 46m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 3: Lúxus WC 3ja laga 36 rl c.a 26,5m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 4: Eldhúsrúllur 24 rúllur í balla c.a 12m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 - 3000

Hverjum og einum er frjálst að kaupa eins mikið og hann/hún vill og þið getið verðlagt vöruna eins og ykkur sýnist best. Hver og einn hirðir svo allan ágóða af sinni sölu sem gæti þá nýst til að fjármagna næsta keppnisferðalag.

Allar pantanir þurfa að berast í seinasta lagi fyrir kl. 20:00 á sunnudagskvöld (28. febrúar) á mailið lydur06@ru.is
Takið fram nafn iðkanda, hvaða pakka þið viljið kaupa og magn. Eins og áður kom fram þá er ykkur frjálst að kaupa alla pakkana og í eins miklu magni og ykkur sýnist.
Upplýsingar um greiðsufyrirkomulag og afhendingu á vöru munu svo berast til ykkar á mánudaginn nk (1. mars).

Thursday, February 18, 2010

Helgin

Engin æfing á laugardag vegna úrslitaleikjanna í bikarkeppni KKÍ.
Leikur Keflavíkur og Hauka í kvennaflokki hefst kl. 14:00 en leikur Snæfells og Grindavíkur í karlaflokki hefst kl. 16:00.

Á sunnudaginn verður æfingu seinkað til kl. 13:30 vegna handboltaleiks og verður æfingin í sal 1.

Á mánudaginn ætlar pabbi hans Emils að bjóða okkur út að borða á veitingastaðnum sínum Santa Maria sem er á Laugavegi 22a. Við skulum mæta þangað kl. 18:00. Við förum ekki í bíó að þessu sinni þar sem að engar áhugaverðar myndir eru í bíó núna svo við geymum það þangað til seinna.

Sunday, February 14, 2010

Æfing á þriðjudag

Það verður engin æfing á þriðjudag. Ég þarf að nota æfinguna fyrir drengjaflokk sem á mikilvægan leik í vikunni og þið eigið skilið smá frí eftir mikið álag undanfarið. Næsta æfing er á miðvikudag.

Við verðum að fresta því að fara út að borða fram í næstu viku þar sem að ég og Toggi komumst ekkert í þessari viku. Held að við ættum að stefna á mánudag í næstu viku. I´ll keep you posted!

Wednesday, February 10, 2010

Leikir næstu helgi

10. flokks túrnering í Keflavík næstu helgi.
Ég er búinn að senda tölvupóst á alla foreldra um að keyra í leikina.

Leikirnir eru sem hér segir:

Laugardagur: (farið frá Valsheimili 09:30)
11:15 Valur-Breiðablik
13:45 Valur-Keflavík

Sunnudagur: (farið frá Valsheimili 08:15)
10:00 Valur-Breiðablik
12:30 Valur-Keflavík

Þeir sem eru farþegar í bíl borga 1.000 krónur í fargjald fyrir hvorn dag.

Í næstu viku stefnum við svo á að gera eitthvað saman. Pabbi hans Emils er búinn að bjóða okkur út að borða á veitingastaðnum sínum Santa Maria. Það væri svo gaman að geta farið í Bíó á eftir. Ef þið hafið einhverjar hugmyndir að mynd þá endilega komið þeim á framfæri.

Friday, February 5, 2010

Borgarnes

Allt klárt fyrir mótið um helgina.
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um brottfarartíma frá Valsheimilinu, þá sem keyra. Þeir sem eru farþegar borga 1.500 krónur í ferðakostnað fyrir hvorn dag (alls 3.000 krónur).

Laugardagur:
Brottför frá Valsheimilinu kl. 09:45
Ellisif fer á bíl og tekur með sér tvo farþega, væntanlega Víði og Kristófer.
Sjálfur fer ég á bíl og tek með mér 4 farþega.
Sólrún fer á bíl og tekur 4 farþega (Daníel + 3)

Sunnudagur:Brottför frá Valsheimilinu kl. 09:00
Matthías (Guðjón + tveir til þrír farþegar)
Sigurlaug (Logi + tveir til þrír farþegar)
Ég (+ þrír farþegar)

Friday, January 29, 2010

Æfingar falla niður + ritaraborð

Æfingar falla niður um helgina vegna landsleiks Íslands í handbolta. Leikir liðsins verða sýndir á risatjaldi í aðalsalnum í Vodafone höllinni og eru allir hvattir til þess að mæta.

Varðandi mótið um helgina hjá 11. flokki þá er ég búinn að raða niður á ritaraborð. Þið sem ekki komist á þessum tímum verðið að skipta við einhvern annann í flokknum eða fá einhver annann í staðinn fyrir ykkur.

Guðjón, Víðir og Kristófer þurfa ekki að vera á ritaraborði þar sem að þeir voru duglegir að hjálpa til á fyrmakeppni Vals um jólin.

Logi, Siggi og Jón verða að spila.

Emil og Magni verða fjarverandi á ferðalagi.

Daníel: kl. 09:00 og 10:15 á laugardag
Alex: kl. 11:30 á laugardag og 10:15 á sunnudag
Freyr: kl. 11:30 á laugardag og 10:15 á sunnudag
Venet: kl. 10:15 og 11:30 á sunnudag
Agli: kl. 11:30 og 12:45 á sunnudag

Verið alltaf mættir amk. 10. mínútum fyrir leik.

Friday, January 22, 2010

Helgin

Engin æfing á laugardaginn. Æfing á sunnudag verður á settum æfingatíma.

Tuesday, January 19, 2010

Æfingatími á miðvikudögum (Uppfært!!!)

Nokkrir hafa beðið um frí í kvöld (þriðjudag) vegna prófa og hef ég því ákveðið að gefa frí á æfingunni í kvöld. Æfing næst á morgun miðvikudag.

Hef ákveðið að breyta æfingatíma örlítið á miðvikudögum. Héðan í frá byrjum við kl. 16:00 en ekki 15:50

Tuesday, January 12, 2010

Plan fyrir vikuna

Svona er planið fyrir vikuna:

Þri, mið og fimmtud: Æfing á settum æfingatíma (muna vinaæfingar á miðvikud. og fimmtud.).
Fös: Frí, allir að mæta á leik Vals og Hauka kl. 20:00 í Vodafone höllinni
Lau: Æfing í sal 3 kl. 09:00 um morguninn!!!!
Sun: Æfing á settum æfingatíma

Monday, January 11, 2010

Vinavika Vals

Nú er í gangi vinavika Vals og hvetjum við alla til þess að taka með sér 1-2 vini á æfingar. Æfingarnar sem um ræðir eru á miðvikudaginn og fimmtudaginn. Með á æfingunum verður Byron Davis leikmaður meistaraflokks Vals og mun hann aðstoða við æfingar og eflaust kenna einhverjar nýjar æfingar. Svo er aldrei að vita nema hann verði með troðslusýningu í lokin.

Við viljum minna á að öllum vinum er frjálst að prófa að mæta áfram á æfingar næstu tvær vikurnar

Friday, January 8, 2010

Æfingar um helgina

Engin æfing verður á laugardag (9. janúar) en það verður æfing á sunnudag samkvæmt æfingatöflu.

Eins og allir vita þá ætlum við að taka okkur á hvað varðar mætinguna.

Fyrir hverja mínútu sem þið mætið seint þá þurfið þið að hlaupa hálft línuhlaup (suicide) en aldrei fleiri en 10.

Ef þið mætið ekki á æfingu án þess að hafa löglega fjarvist þá hlaupið þið 12 línuhlaup á næstu æfingu. Tilkynning um fjarvist verður að berast til þjálfara fyrir æfinguna.

Tuesday, January 5, 2010

Rafræn Reykjavík

Búið er að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið er fyrir ráðstöfun frístundastyrksins út janúar mánuð en eftir það verða sendir út gíróseðlar. Ef barnið er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins í síma 414-8000 eða sendið tölvupóst á ragnhildur@valur.is

Sunday, January 3, 2010

Æfingar hefjast að nýju

Æfingar hefjast samkvæmt æfingatöflu þriðjudaginn 5. janúar.