Sunday, December 27, 2009

Engar æfingar í jólafríinu

Það verða engar æfingar í jólafríinu vegna þess að ekki fást tímar í húsinu vegna takmarkaðs opnunartíma.

Þeir sem geta aðstoðað við ritaraborð í firmakeppninni sem fram fer mánudaginn 28. desember endilega að mæta. Mótið hefst kl. 17:00 og stendur til kl. 20:00.

Æfingar hefjast svo að nýju eftir áramót um leið og skólar byrja.

No comments:

Post a Comment