Friday, March 26, 2010
Valur-Keflavík 10. flokki
Leikurinn gegn Keflavík í 10. flokki verður spilaður laugardaginn 27. mars kl. 11:30 í Valsheimilinu. Verið mættir 10:30 og tilbúnir í búning í síðasta lagi kl. 11:00
Monday, March 22, 2010
Æfingabúðir Vals um páskana
Æfingabúðir Vals um páskana.
Dagana 29.-31. mars fara fram æfingabúðir Vals í körfuknattleik í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Umsjónamaður verður Lýður Vignisson yfirþjálfari yngri flokka Vals en honum til aðstoðar verða reyndir leiðbeinendur.
Boðið verður upp á tvo aldursflokka, yngri og eldri. Yngri iðkendur fæddir 1998-2003 (6-11 ára) eru frá kl. 09:00-11:30. Ráðlegt er að senda börnin með smávegis næringu með á æfingarnar en hlé verður gert á æfingum milli 10:00-10:20 til þess að nærast.
Eldri iðkendur fæddir 1993-1997 (12-16 ára) eru frá kl. 12:00-14:00
Æfingabúðirnar munu einkennast af grunn- og tækniþjálfun þar sem lögð verður áhersla á einstaklinginn. Æfingabúðir yngri iðkenda munu þó einnig einkennast af leikjum og skemmtun en á síðasta degi æfingabúðanna verður haldið mót milli iðkenda í hvorum aldurshópi fyrir sig.Þátttökugjald er kr. 3.000 krónur sem greiðist á fyrsta degi æfingabúðanna.
50% Vinaafsláttur: Ef þú ert Valsari og langar að bjóða einhverjum utan félagsins með þér í æfingabúðirnar þá er það alveg sjálfsagt. Ef þú færð einhvern vin með þér í æfingabúðirnar þá borgið þið báðir/báðar einungis hálft gjald.
Skráningar berist til Lýðs á netfangið Lydur06@ru.is eða í síma 694-4033. Vinsamlegast gefið upp nafn og kennitölu iðkenda sem og nafn, kennitölu og gsm-símanúmer foreldra.

Thursday, March 18, 2010
Æfingaleikur og helgin
Minni ykkur á æfingaleikinn í kvöld kl. 20:30 gegn KR b. Þessi leikur er eingöngu fyrir leikmenn 9. flokks og því fá strákarnir í 10. flokki frí en endilega að mæta og fylgjast með leiknum.
Um helgina verður svo æfing á laugardaginn í gamla salnum kl. 14:40.
Vegna handboltamóts verður engin æfing á sunnudaginn.

Friday, March 5, 2010
Subscribe to:
Comments (Atom)