Friday, January 29, 2010

Æfingar falla niður + ritaraborð

Æfingar falla niður um helgina vegna landsleiks Íslands í handbolta. Leikir liðsins verða sýndir á risatjaldi í aðalsalnum í Vodafone höllinni og eru allir hvattir til þess að mæta.

Varðandi mótið um helgina hjá 11. flokki þá er ég búinn að raða niður á ritaraborð. Þið sem ekki komist á þessum tímum verðið að skipta við einhvern annann í flokknum eða fá einhver annann í staðinn fyrir ykkur.

Guðjón, Víðir og Kristófer þurfa ekki að vera á ritaraborði þar sem að þeir voru duglegir að hjálpa til á fyrmakeppni Vals um jólin.

Logi, Siggi og Jón verða að spila.

Emil og Magni verða fjarverandi á ferðalagi.

Daníel: kl. 09:00 og 10:15 á laugardag
Alex: kl. 11:30 á laugardag og 10:15 á sunnudag
Freyr: kl. 11:30 á laugardag og 10:15 á sunnudag
Venet: kl. 10:15 og 11:30 á sunnudag
Agli: kl. 11:30 og 12:45 á sunnudag

Verið alltaf mættir amk. 10. mínútum fyrir leik.

Friday, January 22, 2010

Helgin

Engin æfing á laugardaginn. Æfing á sunnudag verður á settum æfingatíma.

Tuesday, January 19, 2010

Æfingatími á miðvikudögum (Uppfært!!!)

Nokkrir hafa beðið um frí í kvöld (þriðjudag) vegna prófa og hef ég því ákveðið að gefa frí á æfingunni í kvöld. Æfing næst á morgun miðvikudag.

Hef ákveðið að breyta æfingatíma örlítið á miðvikudögum. Héðan í frá byrjum við kl. 16:00 en ekki 15:50

Tuesday, January 12, 2010

Plan fyrir vikuna

Svona er planið fyrir vikuna:

Þri, mið og fimmtud: Æfing á settum æfingatíma (muna vinaæfingar á miðvikud. og fimmtud.).
Fös: Frí, allir að mæta á leik Vals og Hauka kl. 20:00 í Vodafone höllinni
Lau: Æfing í sal 3 kl. 09:00 um morguninn!!!!
Sun: Æfing á settum æfingatíma

Monday, January 11, 2010

Vinavika Vals

Nú er í gangi vinavika Vals og hvetjum við alla til þess að taka með sér 1-2 vini á æfingar. Æfingarnar sem um ræðir eru á miðvikudaginn og fimmtudaginn. Með á æfingunum verður Byron Davis leikmaður meistaraflokks Vals og mun hann aðstoða við æfingar og eflaust kenna einhverjar nýjar æfingar. Svo er aldrei að vita nema hann verði með troðslusýningu í lokin.

Við viljum minna á að öllum vinum er frjálst að prófa að mæta áfram á æfingar næstu tvær vikurnar

Friday, January 8, 2010

Æfingar um helgina

Engin æfing verður á laugardag (9. janúar) en það verður æfing á sunnudag samkvæmt æfingatöflu.

Eins og allir vita þá ætlum við að taka okkur á hvað varðar mætinguna.

Fyrir hverja mínútu sem þið mætið seint þá þurfið þið að hlaupa hálft línuhlaup (suicide) en aldrei fleiri en 10.

Ef þið mætið ekki á æfingu án þess að hafa löglega fjarvist þá hlaupið þið 12 línuhlaup á næstu æfingu. Tilkynning um fjarvist verður að berast til þjálfara fyrir æfinguna.

Tuesday, January 5, 2010

Rafræn Reykjavík

Búið er að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið er fyrir ráðstöfun frístundastyrksins út janúar mánuð en eftir það verða sendir út gíróseðlar. Ef barnið er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins í síma 414-8000 eða sendið tölvupóst á ragnhildur@valur.is

Sunday, January 3, 2010

Æfingar hefjast að nýju

Æfingar hefjast samkvæmt æfingatöflu þriðjudaginn 5. janúar.