Monday, November 30, 2009

Æfing mánudaginn 31. nóv.

Ég ætla að hafa æfingu mánudaginn 31. nóvember kl. 20:30-21:40 í gamla salnum. Í staðinn verður frí á þriðjudaginn vegna þess að ég og Toggi erum báðir í leik á sama tíma.

Á miðvikudaginn er svo útileikur gegn Þór Þ/Hamri í bikarnum. Leikurinn hefst kl. 20:30. Farið verður á einkabílum og er ég búinn að senda tölvupóst á foreldra ykkar varðandi það efni.

Tuesday, November 24, 2009

Æfing á fimmtudaginn og mót um helgina (uppfært!)

Takk fyrir góða helgi á Króknum. Þið stóðuð ykkur vel og má sjá miklar framfarir hjá ykkur.

Æfingin á fimmtudaginn (26. nóv.) verður kl. 20:00 í gamla salnum. Ég þurfti að breyta tímanum vegna leiks hjá drengjaflokki sem verður kl. 20:30 í sal 3.

Mikilvægt að allir mæti á æfingar en við eigum nokkra leiki framundan. Um helgina verður 10. flokks mót en það verður spilað í Smáranum Kópavogi.

Laugardagur 28.nóv
15:15 Valur-Tindastóll
16:30 Valur-ÍBV

Sunnudagur 29. nóv
10:15 Valur-Breiðablik

Verið alltaf mættir amk. klukkutíma fyrir leik báða dagana.

Bikarleikir verða svo í næstu viku.

9. flokkur
Miðvikudagur 2. desember
20:30 Þór Þ/Hamar. - Valur

10. flokkur
Fimmtudagur 3. desember
20:30 Valur - KR

Monday, November 16, 2009

More than a game

Jæja, þá ætlum við að skella okkur í bíó.

Á miðvikudaginn (18. nóv.) ætlum við að fara á myndina More Than a Game sem er heimildarmynd um Lebron James.

Myndin er sýnd í Sambíóunum Álfabakka kl. 20:00 á miðvikudaginn.
Ég er að vinna í því að fá tilboð á myndina en það verður ca. 1000 krónur og innifalið popp og kók.
Læt ykkur vita betur á æfingu á þriðjudaginn.

Það er svo komið á hreint að við erum að fara á Sauðárkrók um næstu helgi. Ég er búinn að senda póst á foreldra ykkar varðandi þá ferð.

Thursday, November 12, 2009

æfingar helgina 14-15 nóvember

Æfingin á laugardaginn verður samkvæmt æfingatöflu kl. 14:40-16:10.
Æfingin á sunnudag fellur niður vegna fjölliðamóts og handboltaleikja.

Það lítur einnig út fyrir að 9. flokks fjölliðamóti verði frestað til 5-6 desember.

Svo er ætlunin að skella okkur í bíó í næstu viku á Lebron James myndina. Eins og staðan er núna þá stefnum við á að fara miðvikudaginn 18. nóvember.

Friday, November 6, 2009

Helgin

Um helgina verður frí á laugardaginn en æfing á sunnudaginn verður samkvæmt æfingatöflu.

Eins og þið tókuð kannski eftir í kvöld þá er Toggi orðinn nýr þjálfari hjá ykkur í stað Ara.

Wednesday, November 4, 2009

Bikardráttur

Búið að draga í bikarkeppninni.

9. flokkur: Spilum við sigurvegara úr viðureign Þór Þ/Hamar og Grindavíkur (útileikur).
10. flokkur: Valur-KR

Ekki er komin dagssetning á þessa leiki.