Wednesday, October 28, 2009

Vikan framundan

Jæja drengir.

Æfingar verða samkvæmt æfingatöflu nema það verður frí á laugardaginn vegna leiksins á föstudag.

Miðvikudagur: 15:50-17:30
Fimmtudagur: 20:30-22:00
Föstudagur: Leikur kl. 16:30
Laugardagur: FRÍ!
Sunnudagur: 11:40-13:20

Eins og þið sáuð á miðunum sem þið fenguð á æfingu í kvöld þá verður æfingaleikur á föstudaginn gegn Breiðablik. Leikurinn verður kl. 16:30, mæting í seinasta lagi kl. 16:00.
Um kvöldið er svo meistaraflokkur að spila gegn KFÍ og eigið þið að leikgreina þann leik sem heimaverkefni 2 í vetur. Nánari útskýringar má sjá á miða.

Það er mikilvægt að þið mætið á sem flesta heimaleiki meistaraflokkanna til þess að styðja ykkar lið. Þá er líka gott fyrir ykkur að horfa á leikina til þess að læra af þeim.

Thursday, October 22, 2009

Mót um helgina

Um helgina spilum við í íslandsmóti 10. flokki.
Leikirnir verða spilaðir á Hlíðarenda og verða allir leikirnir á laugardaginn.

13:00 Valur-Breiðablik
16:45 Valur-Keflavík
18:00 Valur Tindastóll

Mæting kl. 12:00, allir að mæta.

Wednesday, October 21, 2009

Minnum á rafræna Reykjavík

Nú á að vera búið að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið verður fyrir ráðstöfun til 31. október en eftir það verða sendir út greiðsluseðlar. Ef barnið ykkar er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna.

Wednesday, October 14, 2009

Greiðsla fyrir helgina

Munið eftir að koma með pening á æfingu annað hvort á miðvikudag eða fimmtudag. Gjaldið er 14.000 krónur.

Sunday, October 11, 2009

Þriðjudagsæfing

Á þriðjudaginn næsta (13. okt) þá munum við halda smá fund fyrir æfingu. Þið eigið að mæta kl. 19:00 stundvíslega og er mjög mikilvægt að allir leikmenn 9. flokks mæti (Alexander þarf ekki að mæta á fundinn). Æfing hefst svo 19:35 samkvæmt tímatöflu.

Á fundinum ætlum við að fara yfir helstu áherslur fyrir mótið á Egilsstöðum.

Saturday, October 10, 2009

Engin æfing sunnudag

Engin æfing sunnudaginn 11. október vegna fjölliðamóts sem er í húsinu.

Í næstu viku verðum við svo að taka vel á því vegna þess að það er bara vika í mót og því þurfa allir að mæta á allar æfingar í næstu viku.

Vil svo benda á nýja tengla hérna hægra megin á síðunni.

Tuesday, October 6, 2009

Afsakið æfingun

Sælir drengir.

Ég vill biðjast afsökunar á því að það var enginn með ykkur á æfingu í kvöld. Það varð misskilningur milli mín og þess sem átti að sjá um æfingun. Sjálfur hef ég verið veikur heima með flensu.

Ég mun reyna að mæta á æfinguna á morgun sem hefst 15:50 og reikna ég með að við höfum styrktarþjálfun fyrri hlutann og svo inni í gamla sal seinni hlutann.

Ég vill svo hvetja ykkur til þess að mæta á fyrsta leik meistaraflokks karla annað kvöld kl. 20:00. Hópurinn er mikið breyttur frá því í fyrra og vonandi lætur árangurinn ekki á sér standa. Mætum allir á völlinn og styðjum okkar menn til sigurs!

Þriðjudagsæfing

Æfingin á þriðjudag er með hefðbundnu sniði nema að ég verð ekki þar sem að ég er að fara í Stykkishólm að stjórna leik hjá drengjaflokki. Ég mun fá staðgengil fyrir mig og mun hann skrá mætingu hjá ykkur.

Friday, October 2, 2009

Fyrsta mót.+ foreldrafundur.

Foreldrafundur verður haldinn í Vodafone Höllinni mánudaginn 5. október kl. 18:00 í Lollastúkunni (heiðursstúkan fyrir ofan vellina). Á fundinum mun ég fara yfir starf vetrarins, fjáraflanir, félagsstarf, ferðina á Egilsstaði og annað tengt vetrarstarfinu.

Fyrsta mót 9. flokks verður helgina 17-18. október og verður mótið haldið á Egilsstöðum.
Leikjafyrirkomulagið er svona:

Lau: 17. okt.
11:30 Höttur-Valur
14:00 Fjölnir-Valur

Sun. 18. okt.
09:00 Ármann-Valur
11:30 Breiðablik-Valur

Ég er búinn að senda fyrirspurn varðandi flug+verð á og kem ég þeim upplýsingum til ykkar um leið og ég veit það nánar.

Æfingatímar

Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá er ég búinn að taka út æfingatímann á föstudagskvöldum. Sá tími var bara allt of seint og bara fínt að eiga frí tvo daga í viku. Við eigum þennan tíma hinsvegar alltaf ef við viljum nota hann og er mögulegt að við nýtum okkur tímann daginn fyrir mót.

Annars verður helgin þannig að ég verð ekki með ykkur á laugardaginn þar sem að ég er með leik hjá unglingaflokki á sama tíma. Bennsi úr drengjaflokki ætlar að sjá um æfinguna fyrir mig. Ég mun láta hann hafa æfingaplan og þið sýnið honum sömu virðingu og þið sýnið mér og Ara. Eftir æfinguna getið þið svo séð restina af unglingaflokksleiknum og styðjið ykkar menn til sigurs.

Æfingin á sunnudaginn er samkvæmt æfingatöflu.