Monday, September 28, 2009

Æfing þriðjudag

Æfingin á þriðjudag (29. sept.) mun vera á venjulegum tíma eins og tímataflan segir til um. Ég mun hinsvegar ekki vera með ykkur á æfingunni þar sem að ég er með æfingaleik hjá dr.flokki á sama tima. Hörður, leikmaður meistaraflokks mun sjá um æfinguna. Ég sé ykkur svo á miðvikudaginn.

Friday, September 25, 2009

Æfingaleikur hjá drengjaflokk

Mig vantar 2-3 starfsmenn á ritaraborð vegna æfingaleiks í kvöld hjá drengjaflokki. Leikurinn byrjar kl. 20:30-22:00. Eru einhverjir sem hafa áhuga? Svarið í comment ef svo er!

Æfingar um helgina

Engin æfing í kvöld (föstudaginn 25. sept).
Æfingin á laugardag (26. sept) verður kl. 10:30 um morguninn og æfingin á sunnudag verður samkvæmt töflu.

Thursday, September 17, 2009

Ritaraborð um helgina og æfingar.

Minni ykkur aftur á æfingatíma um helgina. Á föstudag færist æfing fram til kl. 15:00 inn í sal 1 eða 3. Æfingin á laugardaginn verður færð til kl. 10:20 og það á að mæta stundvíslega. Æfingin á sunnudaginn fellur hinsvegar niður.

Svona verður ritaraborðið um helgina og þið verðið að mæta!

Föstud 18. sept.
19:00 ÍR - Haukar (Emil, Eysteinn, Frikki)
19:00 Valur – Hamar (Jón Nordal, Alexander, Siggi)
20:00 KFÍ – Skallagr. (Jón Nordal, Alexander, Siggi)
20:00 FSu – ÍA (Emil, Eysteinn, Frikki)

Laugard. 19. sept.
12:00 ÍR – KFÍ (Víðir, Guðjón, Agli)
13:00 Valur – Fsu (Víðir, Guðjón, Agli)
14:00 Haukar – Skallagr. (Venet, Logi, Freyr)
15:00 Hamar – ÍA (Venet, Logi, Freyr)
16:00 ÍR – Skallgrímur (Daníel, Kristófer, Maggi)
17:00 Valur – ÍA (Daníel, Kristófer, Maggi)
18:00 Haukar – KFÍ (Jón Ingi, Bennsi, Veigar)
19:00 Hamar – Fsu (Jón Ingi, Bennsi, Veigar)

Sunnud. 20. sept.
10:00 A1– B2 (Bergur)
11:00 A2 – B1 (Bergur, Jón Kr.,)
12:00 A4 – B4 (Úlfur, Jón Kr.,)
13:00 A3 – B3 (Úlfur, Alfreð,)
14:00 Úrslit (Alfreð,)

Wednesday, September 16, 2009

Æfingar um helgina

Æfing á föstudaginn 18. sept verður kl. 15:00 í sal 1 eða 3 fyrir þá sem geta mætt. Æfingin á laugardaginn 19. september verður færð til kl. 10:20-11:40. Aftur á móti fellur æfing á sunnudag niður vegna Valsmótsins sem verður um helgina.

Varðandi Valsmótið þá eigið þið að starfa á ritaraborði, tvo leiki á mann. Enginn er undanskyldur þar sem að leikmenn meistaraflokks munu sjá um dómgæslu hjá okkur í vetur og því gerum við þetta í staðinn.

Wednesday, September 9, 2009

Æfingar falla niður

Æfingar fall niður á föstudag (11. sept.) og sunnudag (13. sept.) vegna handboltamóts. Næstu æfingar eru því á fimmtudag og þriðjudag samkvæmt tímatöflu (sjá til hliðar á síðu).

Tuesday, September 8, 2009

Nýjir æfingatímar

Nú eru nýju æfingatímarnir komnir inn og getið þið skoðað þá hér til hliðar á síðunni.
Athugið að nýju æfingatímarnir taka gildi miðvikudaginn 9. september þannig að æfingin á þriðjudaginn 8. september er áfram samkvæmt gömlu töflunni (16:40-17:30) en æfingin á miðvikudag er þá samkvæmt nýju töflunni (sjá hér til hliðar).

Þetta er mjög mikið af æfingum í hverri viku og munum við sjá til í framhaldinu hvort þetta sé of mikið af æfingum fyrir ykkur. Við munum meta það eftir að við höfum keyrt þetta í gegn í nokkurn tíma.

Friday, September 4, 2009

Æfing á laugardag

Æfingin á laugardaginn verður kl. 15:30 og verður með svipuðu sniði og síðasta laugardag þar sem við spiluðum Detroit ásamt 11-drengjaflokki.

Wednesday, September 2, 2009

Æfing fellur niður

Æfing fellur niður í dag, miðvikudaginn 2. september. Ég bæti það upp seinna.