Friday, October 2, 2009

Æfingatímar

Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá er ég búinn að taka út æfingatímann á föstudagskvöldum. Sá tími var bara allt of seint og bara fínt að eiga frí tvo daga í viku. Við eigum þennan tíma hinsvegar alltaf ef við viljum nota hann og er mögulegt að við nýtum okkur tímann daginn fyrir mót.

Annars verður helgin þannig að ég verð ekki með ykkur á laugardaginn þar sem að ég er með leik hjá unglingaflokki á sama tíma. Bennsi úr drengjaflokki ætlar að sjá um æfinguna fyrir mig. Ég mun láta hann hafa æfingaplan og þið sýnið honum sömu virðingu og þið sýnið mér og Ara. Eftir æfinguna getið þið svo séð restina af unglingaflokksleiknum og styðjið ykkar menn til sigurs.

Æfingin á sunnudaginn er samkvæmt æfingatöflu.

No comments:

Post a Comment